Nú er tímabilið í körfubolta hafið og mun Tindastóll TV sýna a.m.k. 6 leiki Tindastóls fyrir áramót í Domino‘s deild karla og gera má ráð fyrir svipuðum fjölda útsendinga á nýju ári. Einnig munum við sýna leiki Tindastóls í 1. deild kvenna í vetur.
Tindastóll TV sýndi 19 leiki Tindastóls á síðasta tímabili, af þeim voru 15 heimaleikir og 3 útileikir í Domino‘s deildinni, Maltbikarnum og 1 æfingarleikur í byrjun tímabils.
Það hefur verið frábært áhorf hjá okkur og allt upp í 2.000 tengt tæki, þar sem möguleiki er á að fleiri en einn séu á bakvið hvert tæki þegar leikirnir eru í beinni útsendingu hjá okkur.
Hægt er að nálgast alla leiki inn á YouTube síðu okkar eftir hvern leik og hafa stakir leikir verið að fá allt upp í 6.000 skoðanir (e. views).
Okkur langaði því að athuga hvort þið hefðuð áhuga á að vera með auglýsingu hjá okkur í vetur.
Allar auglýsingar verða í birtingu á þeim leikjum sem sýnt verður frá á tímabilinu 2018/2019, ásamt því verða auglýsingar settar á vef- og facebook síður Tindastóll TV.
Í öllum útsendingum þá birtast auglýsingarnar fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.
Skjáauglýsingar.
Dæmi, um heila skjáauglýsingu:
Fleiri dæmi:
http://www.tindastolltv.com/auglysingar/viltu-vera-memm-daemi/
Einnig er velkomið að vera með sér auglýsingu í staðinn fyrir að vera bara með logo.
Þá miðast verð við heila skjáauglýsingu.
Auglýsingin þarf að vera með þessum gildum:
• Format: PNG/JPEG
• Myndhlutfall: 16:9 – 1920 x 1080
• Upplausn 72p. pixel/inch
• Gera þarf ráð fyrir 10% spássíu.
Lifandi auglýsingar.
Auglýsingin þarf að vera með þessum gildum:
Mynd:
• Codec – XDCAM HD 50 PAL 50i
• Rammafjöldi – 25
• Myndhlutfall – 16:9
• Fielda-röðun – Upper first
• Pixlafjöldi – 1920×1080
Hljóð:
• Söfnunartíðni 48 kHz
• Dýpt 16 bita
• Ref. -18 dBFS
• Peak -9 dBFS
• Loudness: -23 LUFS
• Hljóðformat: WAV eða AIFF(Þjöppun Engin/PCM )
• Rásir Stereo / dual mono
Nánari upplýsingar má fá á netfanginu:
tvtindastoll [hja] gmail.com
Eða hafa samband við eftirfarandi:
Viggó Jónsson
vjmyndir [hja] fjolnet.is
899-9073
Elfar Már Viggósson
elfarv [hja] gmail.com
663-1699
Gunnar Traustason
gunnar [hja] gunnartr.net
858-9207
Adam Smári Hermannsson
dammih88 [hja] gmail.com
775-0775